Vestia

Fyrirvarar

Lagalegur fyrirvari

Upplýsingar birtar á vef þessum eru byggðar á heimildum sem Eignarhaldsfélagið Vestia  ehf. [hér eftir nefnt Vestia] telur áreiðanlegar. Vestia getur hins vegar ekki ábyrgst að þær séu allar réttar. Þá kunna upplýsingar og skoðanir þær sem fram koma að breytast án fyrirvara.

Upplýsingar sem birtar eru á vef Vestia fela á engan hátt í sér ráðleggingar eða hvatningu til þriðju aðila, hvort heldur sem er einstaklinga eða lögaðila, um kaup eða sölu tiltekinna fjármálagerninga og bera notendur vefsins einir ábyrgð á þeim fjárfestingaákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga sem birtar eru á vefnum. Upplýsingar sem Vestia veitir á vef þessum miðast ekki við ákveðin fjárfestingarmarkmið, ákveðna fjárhagsstöðu eða sérhagsmuni þriðju aðila og er ávallt almenns eðlis þar sem ekki er hægt að taka tillit til aðstæðna hvers og eins. Vestia ber því ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingagjöf félagsins né tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef félagsins. Þá ber Vestia ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn, um skemmri eða lengri tíma.

Vestia á höfundarrétt á öllum þeim upplýsingum sem fram koma á vef félagsins, nema annað sé sérstaklega tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Skriflegt samþykki Vestia þarf til að endurbirta upplýsingar sem fram koma á vef félagsins, dreifa þeim eða afrita þær. Ekki skiptir máli hvers eðlis þær upplýsingar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að endurbirta þær, afrita þær eða dreifa þeim. Viðskiptavinum Vestia er þó heimilt að vista slíkar upplýsingar til einkanota.

Athygli notenda vefs Vestia er sérstaklega vakin á því að viðskipti með fjármálagerninga eru mjög áhættusöm í eðli sínu. Verðbreytingar í fortíðgefa ekki endilega vísbendingu um verðbreytingar í framtíð. Fjárhagsstaða þeirra félaga sem lýst er á vef Vestia getur breyst til hins verra. Notendur vefs Vestia eru hvattir til að afla sér almennra upplýsinga um eðli verðbréfaviðskipta, fjárfestingamálefni, skattamál o.fl. sem tengist verðbréfaviðskiptum hjá ráðgjöfum Vestia.


Nánari upplýsingar

Fannstu ekki það sem þú varst að leita að? Skoðaðu Spurt og svarað eða sendu okkur fyrirspurn.


Vestia ehf.
Kt. 670509-1330
Borgartún 25
105 Reykjavík
Sími 414 5300
vestia@vestia.is