Vestia

Spurt og svarað

Sp: Hvað er Eignarhaldsfélagið Vestia ehf.?

Eignarhaldsfélagið Vestia ehf. er dótturfyrirtæki Landsbankans sem var stofnað í framhaldi af þeim sérstöku aðstæðum sem upp hafa komið á innlendum fjármálamarkaði. Félagið ber ábyrgð á umsýslu og ráðstöfun eignarhalds í atvinnufyrirtækjum sem bankinn hefur eignast í kjölfar endurskipulagningar sem felur það í sér að kröfum bankans er breytt í hlutafé eða eignarhluti sem af öðrum orsökum þykir rétt að félagið fari með.

Sp: Hver er munurinn á eignarhaldsfélögunum Vestia ehf. og Reginn ehf.?

Svar: Síðastliðið vor stofnaði Landsbankinn tvö dótturfélög um framkvæmd sértækra verkefna tengdum fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja. Hlutverk Eignarhaldsfélagsins Vestia ehf. er að fara með þá eignarhluti í atvinnufyrirtækjum sem bankinn eignast í kjölfar endurskipulagningar sem felur það í sér að kröfum bankans er breytt í hlutafé eða eignarhluti sem af öðrum orsökum þykir rétt að félagið fari með . Hlutverk Regins ehf. er að fara með eignarhald bankans á fasteignum eða hlutafé fasteignafélaga sem bankinn hefur fengið í hendur sem lið skuldaskilum viðskiptamanna bankans.

Sp: Af hverju tekur Eignarhaldsfélagið Vestia ehf. yfir hlutafé í atvinnufyrirtækjum?

Svar: Fjölmörg atvinnufyrirtæki hafa að undanförnu ekki farið varhluta af samdrætti í íslensku efnahagslífi, og gengisfalli íslensku krónunnar. Hjá sumum þessara félaga hafa þessir atburðir haft þau áhrif að skuldabyrði þeirra er orðin þeim ofviða, jafnvel þótt rekstur þeirra skili jákvæðum niðurstöðum. Afleiðing þessa er sú að nauðsynlegt er að koma á nýrri fjárhagslegri skipan hjá viðkomandi félögum, eigi að forða þeim frá gjaldþroti. Slík fjárhagsleg endurskipulagning kann í sumum tilfellum að hafa í för með sér, að lánardrottnar eignast hlutafé í viðkomandi fyrirtækjum í kjölfar umbreytinga krafna þeira í hlutafé.

Landsbankinn (NBI hf.), hefur stofnað Eignarhaldsfélagið Vestia ehf., en hlutverk þess félags er að annast um hlutafé í atvinnufyrirtækjum eða eignarhaldsfélögum sem bankinn hefur eignast í kjölfar fullnustuaðgerða af því tagi sem lýst er að ofan, eða annars konar skuldaskila. Einnig kann bankinn að færa til félagsins eignir sem af öðrum orsökum þykir heppilegt að félagið annist um.

Sp: Af hverju tekur Vestia yfir hlutafé í atvinnufyrirtækjum en ekki Landsbankinn sjálfur?

Svar: Landsbankinn (NBI hf.) er oft lánveitandi þeirra félaga sem hér um ræðir, og mun verða það áfram þrátt fyrir hina fjárhagslegu endurskipulagningu. Til að tryggja aðskilnað á milli lánastarfsemi bankans annars vegar og hins vegar eignarhalds og umsýslu bankans á hlutafé í atvinnufyrirtækjum var Eignaumsýslufélagið Vestia ehf. stofnað og er hlutverk þess að halda utan um eignarhlut bankans í viðkomandi félögum eftir að fjárhagsleg endurskipulagning þeirra er um garð gengin.

Sp: Hver er verkskipting milli Fyrirtækjasviðs Landsbankans, Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans og Vestia hins vegar?

Svar: Vestia starfar í nánu samstarfi við fyrirtækjasvið og fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að úrlausn þeirra viðfangsefna sem að þeim beinast. Fyrirtækjasvið ber ábyrgð á stöðugreiningu, mati og tillögugerð varðandi aðgerðaþörf og skuldaskipulagningu fyrir viðskiptavini en fyrirtækjaráðgjöf hefur með höndum þjónustu m.a. tengt sölu og skráningu félaga o.s.frv.

Um aðgerðir Landsbankans vegna greiðsluerfiðleika fyrirtækja

Sp: Hvernig fer söluferli fram á eignasafni Vestia?

Svar: Eignarhaldsfélagið Vestia ehf. hefur sett sér sérstakar starfsreglur um meðferð, umsýslu og ráðstöfun eignarhluta sem Landsbankinn kann að eignast í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar á rekstri atvinnufyrirtækja eða í kjölfar skuldaskila viðskiptamanna bankans. Sala á eignum úr eignasafni Vestia mun að því marki sem frekast er unnt fara fram í gegnum opin og gegnsæ söluferli sem verða auglýst í fjölmiðlum og á vef félagsins.

Sp: Lánar Vestia fyrir söluvirði eigna?

Svar: Nei, Vestia mun ekki veita kaupendum eigna félagsins lán til kaupanna. Kaupendur eigna munu því alfarið þurfa að leysa fjármögnun kaupanna í samvinnu við sinn viðskiptabanka.

Sp: Hvað mun Vestia fara lengi með eignarhlut í atvinnufyrirtækjum?

Svar: Meginmarkmið með starfsemi Vestia og meðferð eigna í umsýslu félagsinns að hámarka endurheimtur bankans við ráðstöfun eigna og þar með að lágmarka þær afskriftir sem Landsbankinn myndi ella þurfa að takast á hendur. Þá er það einnig markmið sem starfseminni, að tryggja aðskilnað á milli lánastarfsemi Landsbankans annars vegar og hins vegar eignarhalds og umsýslu bankans á hlutafé í atvinnufyrirtækjum. Landsbankinn hefur lýst því yfir að við umsýslu og ráðstöfun eigna verði gætt jafnræðis og gegnsæis og að eignarhaldstími Vestia á hlutafé atvinnufyrirtækja s skuli vera eins stuttur og framast er unnt að teknu tilliti til aðstæðna og möguleika bankans að fá eðlilegt endurgjald fyrir hlutafjáreign sínavið ráðstöfun hennar. Eignarhald Vestia á hlutafé atvinnufyrirtækja er þannig tímabundið og mun eignahluturinn verða seldur í opnu tilboðsferli strax þegar aðstæður leyfa. Upplýsingar um söluferlið sem og eignarhald Vestia á hlutafé í öðrum atvinnufyrirtækjum eru aðgengilegar hér á vef Vestia.

Sp: Hvaða áhrif hefur eignarhald Vestia á hlutafé í atvinnufyrirtækjum á samkeppni?

Svar: Vestia mun við umsýslu og ráðstöfun eigna sinna huga að samkeppnisstöðu þeirra fyrirtækja sem félagið fer með eignarhluti í og leitast við að raska henni sem minnst. Félagið mun eftir því sem unnt er reyna að koma í veg fyrir að ákvarðanataka og ráðstöfun eigna stuðli að fákeppni eða raski samkeppnisstöðu annarra aðila eða milli fyrirtækja sem starfa á viðkomandi markaði. Félagið mun í starfsemi sinni fylgja þeim tilmælum Samkeppniseftirlits sem fram koma í áliti stofnunarinnar nr. 3/2008 um ákvarðanir banka og stjórnvalda um framtíð fyrirtækja á samkeppnismörkuðum.

Sp:Fá stjórnarmenn greitt fyrir setu í stjórn Eignarhaldsfélagsins Vestia ehf.?

Svar: Starfsmenn Landsbankans sem sitja í stjórn Eignarhaldsfélagsins Vestia ehf. fá ekki greitt fyrir stjórnarsetu, enda er litið á slíka stjórnarsetu sem hluta af starfsskyldum þeirra.

Sp: Fá starfsmenn Vestia greitt fyrir stjórnarsetu í félögum í eignasafni Vestia?

Svar: Starfsmenn Eignarhaldsfélagsins Vestia ehf. fá ekki greitt fyrir stjórnarsetu í þeim félögum sem Vestia ehf. fer með eignarhluti í, enda er litið á slíka stjórnarsetu sem hluta af starfsskyldum þeirra. Séu stjórnarlaun greidd í slíkum félögum renna þau að fullu til Eignarhaldsfélagins Vestia ehf.


Vestia ehf.
Kt. 670509-1330
Borgartún 25
105 Reykjavík
Sími 414 5300
vestia@vestia.is