Fréttir
Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
Opnu söluferli á Parlogis ehf., sem hófst 10. maí 2010, er nú lokið með undirritun sölusamnings á öllu hlutafé félagsins. Seljendur hlutabréfanna eru Vestia ehf. (80%) og Atorka Group hf. (20%), en kaupandinn er Lyfjaþjónustan ehf. Kaupverð fyrir allt hlutafé félagsins samkvæmt sölusamningi eru 250 milljónir króna, staðgreitt. Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Seljendur eru ánægðir með þann áhuga sem fjárfestar sýndu félaginu. Alls fengu 12 aðilar ítarleg kynningargögn um Parlogis og á grundvelli þeirra lögðu 4 aðilar fram óskuldbindandi tilboð. Í framhaldi af því fengu þessir bjóðendur aðgang að gagnaherbergi til að framkvæma áreiðanleikakönnun á félaginu, áður en lagt var fram bindandi tilboð. Söluferlinu lauk eins og áður segir með undirritun kaupsamnings við Lyfjaþjónustuna.
Parlogis á sér langa sögu sem eitt helsta dreifingarfyrirtæki á vörum til íslensks heilbrigðiskerfis. Markaðshlutdeild í dreifingu lyfja er yfir 30%. Fyrirtækið býr yfir 4.000 fermetra sérhæfðu lagerhúsnæði, nútíma upplýsingakerfum, þróuðum vinnuferlum og sérhæfðu starfsfólki. Rekstur Parlogis er í ágætu horfi og hafa stjórnendur og starfsmenn fyrirtækis náð góðum árangri í erfiðu árferði en fyrirtækið varð fyrir miklum skakkaföllum í tengslum við efnahagshrunið og gengisfall krónunnar. Lánveitendur félagsins, Landsbankinn og Atorka brugðust við þeim áföllum með því að breyta hluta skulda í hlutafé og sköpuðu félaginu þannig nýjan rekstrargrundvöll. Salan nú á öllu hlutafé í Parlogis er þannig síðasti hluti velheppnaðs endurreisnarferlis góðs og rekstrarhæfs fyrirtækis.
Steinþór Baldursson, framkvæmdastjóri Vestia, sagði af þessu tilefni: "Parlogis er fyrsta félagið sem selt er úr eignasafni Vestia. Með sölunni hefur Vestia náð að uppfylla meginmarkmið sín um að hámarka endurheimtur við ráðstöfun eigna, lágmarka eignarhaldstíma og gæta jafnræðis og gagnsæis við söluferli. Þessi góði árangur gefur ennfremur byr í seglin við undirbúning á áframhaldandi sölu á eignum félagsins." Kristján Jóhannsson, stjórnarformaður Lyfjaþjónustunnar ehf., kvaðst vera "ánægður með kaupin og hlakka til að vinna að frekari stefnumótun og framþróun félagsins með stjórnendum og starfsfólki þess".
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með söluferlinu af hálfu seljenda. Upplýsingar um fyrirkomulag söluferla eigna Vestia sem og upplýsingar um eignarhald þess á hlutafé í öðrum atvinnufyrirtækjum, eru aðgengilegar hér á vefsíðu Vestia.
Um Parlogis
Parlogis dregur nafn sitt af "Partner in Logistics", sem endurspeglar vel tilgang félagsins. Parlogis á sér langa sögu sem eitt helsta dreifingarfyrirtæki á vörum til íslensks heilbrigðiskerfis. Þjónustan sem fyrirtækið veitir er grunn dreifingarþjónusta í samræmi við strangar gæðakröfur innlendra eftirlitsaðila sem og lyfjaframleiðenda auk margs konar virðisaukandi þjónustu. Markaðshlutdeild í dreifingu lyfja er yfir 30%. Fyrirtækið býr yfir 4.000 fermetra sérhæfðu lagerhúsnæði, nútíma upplýsingakerfum, þróuðum vinnuferlum og sérhæfðu starfsfólki. Starfsmenn Parlogis eru 55 talsins. Framkvæmdastjóri Parlogis er Guðný Rósa Þorvarðardóttir.
Um Lyfjaþjónustuna
Lyfjaþjónustan er kaupandi alls hlutafjár Parlogis. Aðstandendur og eigendur félagsins eru í hópi núverandi eigenda Icepharma, sem er sölu- og markaðsfyrirtæki fyrir heilsutengdar vörur og íþróttavörur frá alþjóðlegum birgjum. Parlogis verður áfram rekið sem sjálfstætt félag, og mun kappkosta að veita núverandi og nýjum viðskiptavinum jafngóða eða betri þjónustu hér eftir sem hingað til.
Um Vestia
Eignarhaldsfélagið Vestia er dótturfyrirtæki Landsbankans. Félagið ber ábyrgð á umsýslu og ráðstöfun eignarhalds í atvinnufyrirtækjum sem bankinn hefur eignast í kjölfar endurskipulagningar sem felur það í sér að kröfum bankans er breytt í hlutafé eða eignarhluti sem af öðrum orsökum þykir rétt að félagið fari með.
Um Atorku
Atorka er að fullu í eigu kröfuhafa í framhaldi af nauðasamningum, sem tryggðu að Atorka er nú vel í stakk búið til að styðja við eignir sínar og hámarka endurheimtur fyrir lánardrottna. Promens er langstærsta og verðmætasta eign Atorku. Félagið á einnig hlut í skráðum eignum á erlendum mörkuðum, þ.m.t. Interbulk Group PLC, Clyde Process Solutions, NWF og Asia Environment.
Til bakaFréttasafn
- 20.08.2010Vestia selt til Framtakssjóðs Íslands
- 06.08.2010Vestia eignast Plastprent að fullu
- 03.08.2010Tilboði um kaup á hlutafé í Plastprent hf. lokið
- 23.07.2010Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
- 09.07.2010Tilboð um kaup á hlutafé í Plastprenti hf.
- 10.05.2010Ný stjórn kosin á aðalfundi Húsasmiðjunnar
- 10.05.2010Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins varðandi yfirtöku Vestia á Húsasmiðjunni
- 10.05.2010Dreifingarfyrirtækið Parlogis til sölu
