Fréttir
Tilboð um kaup á hlutafé í Plastprenti hf.
Stjórnendur Plastprents hf. hafa um nokkuð skeið unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í samvinnu við viðskiptabanka þess og helsta lánveitanda, Landsbankann, með það að markmiði að vernda þau verðmæti sem liggja í starfsemi félagsins og þau störf sem félagið skapar.
Vestia er í dag stærsti eigandi Plastprents hf. með 71,98% eignarhlut. Eignarhlut sinn eignaðist Vestia í desember 2009 með kaupum Landsbankans á hlutafjáreign stærstu hluthafa í félaginu, en sá eignarhlutur var síðar framseldur til Vestia. Sem hluta af fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins og í aðdraganda hluthafafundar sem boðaður hefur verið 6. ágúst, hefur Vestia sent hluthöfum Plastprents tilboð um kaup á öllu eftirstandandi hlutafé félagsins. Tilboð Vestia til hluthafa nú er það sama og stærstu hluthafar fengu í desember 2009 og þannig tryggt að allir hluthafar Plastprents sitji við sama borð.
Að fjárhagslegri endurskipulagningu lokinni mun Plastprent vera sett í formlegt og opið söluferli. Upplýsingar um söluferlið þegar að því kemur sem og upplýsingar um eignarhald Vestia á hlutafé í öðrum atvinnufyrirtækjum eru aðgengilegar hér á vefsvæði félagsins.
Til bakaFréttasafn
- 20.08.2010Vestia selt til Framtakssjóðs Íslands
- 06.08.2010Vestia eignast Plastprent að fullu
- 03.08.2010Tilboði um kaup á hlutafé í Plastprent hf. lokið
- 23.07.2010Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
- 09.07.2010Tilboð um kaup á hlutafé í Plastprenti hf.
- 10.05.2010Ný stjórn kosin á aðalfundi Húsasmiðjunnar
- 10.05.2010Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins varðandi yfirtöku Vestia á Húsasmiðjunni
- 10.05.2010Dreifingarfyrirtækið Parlogis til sölu
