Fréttir
10.05.2010
Nýr framkvæmdastjóri hjá Plastprenti
Ólafur Steinarsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Plastprents hf. Nýr framkvæmdastjóri er Guðbrandur Sigurðsson og hefur hann nú þegar tekið við störfum. Guðbrandur mun stýra félaginu næstu mánuði á meðan það fer í gegnum það söluferli sem fyrirhugað er. Guðbrandur hefur lengst af starfað í sjávarútvegi og þá sem framkvæmdastjóri hjá Útgerðarfélagi Akureyringa hf. Guðbrandur hefur einnig starfað sem forstjóri Mjólkursamsölunnar og Auðhumlu. Nú síðast hefur Guðbrandur rekið ráðgjafarfyrirtækið Nýland ehf sem sérhæft hefur sig í m.a. í verkefnum er lúta að skipulagsbreytingum fyrirtækja. Hann er menntaður viðskiptafræðingur með MBA prófgráðu frá Edinburgh University Management School.
Til bakaFréttasafn
- 20.08.2010Vestia selt til Framtakssjóðs Íslands
- 06.08.2010Vestia eignast Plastprent að fullu
- 03.08.2010Tilboði um kaup á hlutafé í Plastprent hf. lokið
- 23.07.2010Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
- 09.07.2010Tilboð um kaup á hlutafé í Plastprenti hf.
- 10.05.2010Ný stjórn kosin á aðalfundi Húsasmiðjunnar
- 10.05.2010Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins varðandi yfirtöku Vestia á Húsasmiðjunni
- 10.05.2010Dreifingarfyrirtækið Parlogis til sölu
