Vestia

Fréttir

07.04.2010

Vestia undirbýr sölu þriggja félaga

Stjórn Vestia hefur ákveðið að setja eignarhluti félagsins í þremur atvinnufyrirtækjum í formleg og opin söluferli á næstunni. Um er að ræða eignarhluti í lyfjadreifingarfyrirtækinu Parlogis hf., plastframleiðslufyrirtækinu Plastprent hf., og dönsku rækjuvinnslunni Cimbric Fiskekonsverses A/S en nánari lýsingu á félögunum má finna hér að neðan. Við ráðstöfun félaganna verður gætt gagnsæis og jafnræðis fjárfesta en upplýsingar um öll söluferli og niðurstöður þeirra verða birt þegar þar að kemur á vefsíðu Vestia, www.vestia.is.

Söluferlin verða opin öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði þess efnis að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Samkvæmt starfsreglum Vestia er félaginu heimilt við framkvæmd söluferla að setja bjóðendum hæfiskilyrði er varða fjárhagslegan styrk þeirra, auk annarra málefnanlegra skilyrða. Nánari útfærsla einstakra söluferla verður kynnt síðar.

Um Parlogis hf:

Parlogis sérhæfir sig í vörustjórnun fyrir heilbrigðisstofnanir, lyfjafyrirtæki og sérverslanir með heilsutengdar vörur. Parlogis býður viðskiptavinum sínum upp á þjónustu við birgðastýringu, innkaup, innflutning, tollafgreiðslu, geymslu, mótttöku pantana, dreifingu innanlands, reikningagerð og innheimtu.

Parlogis á sér rætur í Lyfjaverslun Íslands og Thorarensen Lyfja en dreifingarstarfsemi þessara félaga var sameinuð undir nafni Lyfjadreifingar ehf. Árið 2004 varð Lyfjadreifing sjálfstætt dótturfyrirtæki Atorku Group og var nafni félagsins breytt árið 2005 í Parlogis hf. Árið 2007 keypti DM ehf. öll bréf Atorku í Parlogis.

Starfsmenn Parlogis eru 55 talsins.

Um Plastprent hf:

Plastprent hf. er leiðandi fyrirtæki á Íslandi í framleiðslu plastumbúða og plastfilma fyrir matvælaiðnað, sjávarútveg, landbúnað, verslanir og stórfyrirtæki. Einnig býður fyrirtækið skyldar vörur til reksturs og endursölu. Í starfsemi félagsins á Íslandi starfa um 90 starfsmenn.

Félagið er einnig í tengdri starfsemi í Bretlandi, Færeyjum og Litháen í gegnum dótturfyrirtæki sín Gerove, Fispak, Virenda, og Plastprent Foröyar. Starfsmenn Plastprents erlendis eru um 120 talsins.

Um Cimbrik Fiskekonserves A/S:

Cimbric Fiskekonserves A/S er í 65% eigu Eignarhaldsfélagsins Vestia ehf., dótturfyrirtæki Landsbankans, eftir yfirtöku á eignarhlut ADB Holding Vogn A/S. Eigandi 35% eignarhlutsins er Larsen Danish Seafood A/S.

Cimbric var stofnað árið 1964 og er gamalgróið þekkt nafn í rækjuvinnslu í Danmörku. Meginstarfsemi Cimbric felst í pökkun á rækju og öðrum skelfisk sem er dreift til smásöluaðila, stóreldhúsa og annarra notenda. Fyrirtækið er með starfsemi í Vogn á Jótlandi og Frederikshavn. Félagið dreifir vörum sínum að langmestu leyti til aðila innan Danmerkur, en útflutningur er þó einnig til m.a. Ítalíu og Þýskalands.

Heildarfjöldi starfsmanna í Cimbric er um 38 manns.

Til baka

Fréttasafn


RSS áskrift að fréttatilkynningum Vestia | Hvað er RSS?


Vestia ehf.
Kt. 670509-1330
Borgartún 25
105 Reykjavík
Sími 414 5300
vestia@vestia.is